spot_img
HomeFréttirStyrmir Snær og Davidson unnu sinn sjöunda leik í röð

Styrmir Snær og Davidson unnu sinn sjöunda leik í röð

Styrmir Snær Þrastarson og Davidson Wildcats unnu sinn sjöunda leik í röð í gær í bandaríska háskólaboltanum er liðið lagði Radford Highlanders, 54-74.

Það sem af er tímabili hefur Davidson unnið átta leiki og tapað aðeins tveimur.

Á þremur mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir einni stoðsendingu, en hann tók aðeins eitt skot í leiknum.

Næsti leikur Styrmis og Davidson er þann 22. desember gegn Alabama Crimson Tide.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -