HomeFréttirStyrktarleikur fyrir Hugarafl hjá Fjölni á miðvikudaginn

Styrktarleikur fyrir Hugarafl hjá Fjölni á miðvikudaginn

 

Miðvikudaginn 20.desember frá 19:00-21:00 í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi verður styrktarleikur til styrktar Hugarafli sem að eru félagasamtök í geðheilbrigðismálum (nánar um samtökin neðar).

Finnið viðburðinn á facebook undir „Hugarafl – Styrktarleikur og gleði í Dalhúsum 2017

 

 

Meistaraflokkar boltagreina Fjölnis sameinast og spila körfubolta,fótbolta og handbolta með aðstoð fyrirliða liðanna sem eru:
Gunnleifur Gunnleifsson leikmaður Breiðabliks
Róbert Sigurðsson leikmaður Stjörnunnar
Kristinn Freyr Sigurðursson leikmaður Vals
Ágúst Elí Björgvinsson leikmaður FH

 

Happadrætti í hálfleik með frábærum vinningum:
*Árituð treyja frá Bjarka Má Elíssyni leikmanni Fuchse Berlín
*Árituð treyja frá Aroni Jóhannsyni leikmanni Werder Bremen
*Árituð treyja frá leikmönnum leiksins
* Shake and pizza gjafabréf í keilu og pizzu fyrir 5 manns *5 vinningar
*Fontana heilsulind á Laugarvatni gjafabréf fyrir 2 *2 vinningar
* AudioTechnica heyrnartól frá Nýjerja
* Gjafabréf frá Danssport (Hummel umboðið)
* Gjafabréf á Gullnesti
* Ásamt nokkrum öðrum vinningum

 

Áttan skemmtir í hálfleik ásamt leynigest
Ingvar Örn kynnir
Mætið og styrkið frábært málefni og tökum þátt í gleðinni.
Sjáumst á miðvikudaginn í Dalhúsum.

 

Seinni hálfleikur leiksins fer svo fram á Gullöldinni á öðrum degi jóla, þar verða skemmtiatriði og jólagluggar opnaðir, frábærir vinningar t.d. árituð Barcelona treyja Arons Pálmasonar, árituð Augsburg treyja Alfreðs Finnbogasonar og áritaðir markmannshanskar Sonný Láru Þráinsdóttur ásamt fleiri frábærum vinningum. Þar höldum við áfram að safna fyrir Hugarafli.

Fylgist með á gulloldin.is en þar koma inn upplýsingar um seinni hálfleikinn á næstu dögum.

 

 

Um Hugarafl:

Félagasamtökin Hugarafl starfrækja notendastýrða endurhæfingu og virknimiðstöð fyrir fólk með geðraskanir.

 

Hugarafl og Geðheilsa-eftirfylgd ( teymi fagfólks ) veita stuðning í bataferli sem byggir á að efla geðheilsu og tækifærin í daglegu lífi. Sá sem slæst með í för eða óskar eftir stuðningi, kynnist því bæði faglegum stuðningi og þekkingu notanda í bata og það getur orðið sameiginlegt veganesti í bataferlinu. Samhliða því getur einstaklingur sótt liði á dagskrá sem styðja við bataferli viðkomandi og síðar unnið að auknum tækifærum í samfélaginu, s.s. skólagöngu, atvinnu og auknum lífsgæðum. Hugarafl er stærsta opna úrræði á Íslandi sem veitir einstaklingum með geðraskanir stuðning og þjónustu. Með opnu úrræði er átt við að það er opið öllum sem telja sig þurfa á því að halda óháð aldri, stöðu, tilvísunar og sjúkdómsgreiningar. Einstaklingur getur leitað til Hugarafls á eigin forsendum og ekki er gerð krafa um milliliði.

 

Til Hugarafls leyta 30 – 60 einstaklingar á dag eftir þjónustu, hvort sem er í formi viðtala, hópavinnu, samveru með batahvetjandi umræðum, sækja fyrirlestra ofl.
Mjög öflugt starf er í Hugarafli fyrir ungt fólk ( 18 – 30 ára ) þar sem fjöldi fólks hefur farið aftur útí lífið eftir mikla einangrun.

 

Hugarafl eru líka baráttufélag og stendur vörð um að rödd þeirra sem nota geðheilbrigðiskerfið fái að heyrast, láta til sín taka með að kynna geðheilbrigði fara með geðfræðslur í grunn- og framhaldskólana. Síðasta ár hefur félagið barist fyrir lífi sínu, ef svo má að orði komast þar sem styrkir / stuðningur frá ríki og borg var í sögulegu lágmarki. Og þar sem um frjáls félagasamtök er að ræða eru það þeir styrkir auk stuðnings frá fyrirtækjum og einstaklingum á landinu sem halda starfinu gangandi

Fréttir
- Auglýsing -