Fyrstu helgina í júlí fer fram Humarhátíðin á Höfn og í tengslum við hana verður, eftir nokkurt hlé, efnt til Streetball-móts á nýjum útivelli við Heppuskóla á Humarhátíðinni. Keppni fer fram á laugardeiginum 2. júlí.
Spilað verður 3-á-3 en hvert lið má hafa einn skiptimann. Sóknin dæmir. Þegar lið hefur náð að skora 11 stig (og er að vinna með 2 stigum) hefur það unnið leikinn eða þá það lið sem er yfir eftir 12 mínútna leik (klukkan er ekkert stoppuð).
Keppt verður í tveimur flokkum, 12-16 ára og 17 ára og eldri. Mótsgjald er 1.000 kr. á lið og greiðist á mótsstað. Áættlað er að keppni yngri þátttakenda hefjist kl. 14.00 og verði lokið um kl. 15.00. Eldri hefja leik í framhaldinu og miðað er við að mótið verði að klárast um kl 17.00.
Verðlaun verða svo veitt fyrir sigurvegara í hvorum flokki fyrir sig.
Skráning fer fram á netfanginu [email protected] en senda skal inn nafn á liði, nöfn þeirra sem eru í liðinu ásamt aldri leikmanna.
Dagskrá hátíðarinnar er væntanleg á www.humarhatið.is.
Mynd: Götubolti er vinsæll og hér sést kunnur kappi leika listir sínar á malbikinu..
www.kki.is




