HomeFréttirStórstjörnur úr EuroLeague í riðli Íslands í komandi landsleikjaglugga

Stórstjörnur úr EuroLeague í riðli Íslands í komandi landsleikjaglugga

Þótt NBA-leikmenn láti sig vanta í komandi landsleikjaglugga í undankeppni HM 2027 verður enginn skortur á gæðum í J-riðli, þar sem Ísland leikur gegn Bosníu, Tyrklandi, Serbíu, Ítalíu og Litháen. Samantekt sýnir að nokkrir af fremstu leikmönnum Evrópu eru í hópum andstæðinga Íslands, þótt árekstrar við leikjadagskrá EuroLeague setji strik í reikninginn hjá sumum þeirra.

Ísland tekur á móti Bosníu í Laugardalshöll annað kvöld, fimmtudaginn 26. nóvember, klukkan 19:30 og fer miðasala á leikinn fram í Stubb. Á sunnudaginn, 29. nóvember, mætir íslenska liðið svo Tyrklandi ytra klukkan 15:30 að íslenskum tíma.

Tyrkinn knái lék um árabil í NBA deildinni

Hjá Bosníu er stjarna Dubai Basketball, Dzanan Musa, á bráðabirgðalista liðsins en þar sem hann leikur í EuroLeague í kvöld (miðvikudag) þykir mjög ólíklegt að hann nái leiknum gegn Íslandi í Laugardalshöll á morgun. Bosnía er með 3 sigra og 5 töp í riðlinum og þarf að vinna alla fjóra leikina sem eftir eru til að eiga von um sæti á HM. Tyrkir, sem þegar hafa tryggt sér farseðilinn á HM með fullt hús stiga (8–0) í J-riðli, völdu hins vegar bakvörðinn Malachi Flynn sem sinn erlenda leikmann í þennan glugga, en hinn 28 ára gamli fyrrverandi NBA-leikmaður hefur farið á kostum í EuroCup með Bahcesehir á tímabilinu.

Jonas Valanciunas

Hin liðin í J-riðli tefla sömuleiðis fram þekktum nöfnum. Serbar, sem sitja í 2. sæti riðilsins með 6 sigra og 2 töp, verða líklega án tvöfalda EuroLeague-meistarans Vasilije Micic í útileiknum gegn Litháen á morgun, en hann á að vera klár í slaginn gegn Ítalíu á sunnudag. Marko Guduric, leikmaður Olimpia Milano, verður hins vegar líklega með Serbíu í báðum leikjum eftir að hafa spilað í EuroLeague í gær. Þá er litháíski miðherjinn Jonas Valanciunas, sem sneri aftur til Zalgiris Kaunas í sumar eftir 14 ár í NBA, á stærri lista Litháa. Hann missir örugglega af stórleiknum gegn Serbíu á morgun en gæti náð leiknum gegn Bosníu á sunnudag, en Litháen er í 4. sæti riðilsins með 4 sigra og 4 töp. Auk leikja Íslands fara fram tveir aðrir leikir í riðlinum á fimmtudaginn þegar Litháen tekur á móti Serbíu klukkan 16:30 og Ítalía fær Tyrkland í heimsókn klukkan 19:00, en á sunnudaginn mætast Bosnía og Litháen klukkan 17:00 og Serbía og Ítalía á sama tíma.

Í öðrum riðlum má einnig finna fjölda stórstjarna úr EuroLeague. Í I-riðli mætir Tornike Shengelia beint úr leik með Dubai Basketball til að hjálpa Georgíu gegn Grikklandi og Tyler Dorsey á morgun, á meðan Juancho Hernangomez leiðir Spánverja gegn Svartfjallalandi og Grikklandi. Í K-riðli geta bæði Þýskaland, með skyttuna Andreas Obst í broddi fylkingar, og Pólland, með Mateusz Ponitka, tryggt sér sæti á HM, auk þess sem Dario Saric er í hóp Króata. Þá geta Frakkar sömuleiðis gulltryggt farseðilinn í L-riðli með sigri á Eistlandi á föstudaginn, þar sem Sylvain Francisco hefur verið kallaður inn í franska hópinn í stað Nadir Hifi.

Fréttir
- Auglýsing -