Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður körfuknattleiksdeildar Þórs Þorlákshafnar og segja sig úr stjórn deildarinnar af persónulegum ástæðum. Þetta kemur fram í umfjöllun Hamingjuhafnar
Við keflinu tekur Ingimar Rafn Ágústsson, sem hefur gegnt embætti varaformanns og setið í stjórn deildarinnar síðustu ár. Í yfirlýsingu sem Hamingjuhöfn greinir frá þakkar stjórn Þórs Vilhjálmi kærlega fyrir óeigingjarnt starf, metnað og mikilvægt framlag til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Að sögn stjórnarinnar er tryggt með þessum breytingum að samfella haldist í starfinu og áfram verði unnið markvisst að uppbyggingu körfuboltans í Þorlákshöfn. Bent er á að spennandi verkefni séu fram undan bæði innan og utan vallar og að styrkur Þórs byggist fyrst og fremst á öflugu baklandi, stuðningsmönnum og sjálfboðaliðum félagsins.
Bæði meistaraflokkslið Þórs Þorlákshafnar eru í toppbaráttunni í sínum deildum um þessar mundir; karlaliðið situr á toppi Bæjarins beztu deildar karla með 14 stig eftir átta umferðir, jafnt ÍA og Haukum að stigum, og kvennaliðið trónir sömuleiðis á toppi Bæjarins beztu deildar kvenna.




