Stjarnan tók á móti Tindastóli í Ásgarði í gærkvöld í fyrsta leik liðanna í seinni umferð Iceland Express deildar karla. Stjörnumenn hafa ekki byrjað nýtt ár sannfærandi og höfðu átt þrjá hörmulega leiki í röð, gegn Fjölni, Snæfell og Grindavík, en gestirnir úr Skagafirði hafa verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum eftir að Bárður Eyþórsson tók við liðinu. Það var því von á hörkuleik í Garðabænum.
Stjörnumenn virtust staðráðnir í að skilja við síðustu leiki í byrjun. Skagfirðingar voru fljótlega komnir með skotrétt á sig og nýttu Stjörnumenn sér það ágætlega, en náðu þó engu forskoti af viti. Renato Lindmets var sterkur undir körfunni hjá heimamönnum og Keith Cothran leit talsvert betur út en hann hefur gert hingað til. Hjá Stólunum voru Curtis Allen og Mo Miller nokkuð heitir. Heimamenn höfðu sex stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta, staðan 25-19.
Annar leikhluti spilaðist svipað og sá fyrsti. Stjörnumenn höfðu yfirhöndina en Stólarnir voru þó aldrei langt undan. Oft virtust Stjörnumenn ætla að stinga af en gestirnir að norðan svöruðu ávallt. Staðan í hálfleik var 40-35 og allt í járnum.
Í þriðja leikhluta tóku Stjörnumenn aðeins að bæta í forskot sitt, en munurinn var þó aldrei mikið meiri en 10 stig. Keith Cothran átti tilþrif tímabils síns hingað til með svakalegri hamarstroðslu í andlitið á Þresti Jóhannssyni, og við það ætlaði þakið af húsinu.
Stjörnumenn náðu þó ekki að byggja á þessum hamri Cothran og Stólarnir virtust alltaf líklegir til að komast inn í leikinn að nýju. Stjörnumenn höfðu þó 9 stiga forskot fyrir fjórða leikhluta en ljóst var að allt gæti gerst, enda var leikur heimamanna ekkert sérlega sannfærandi. Staðan 65-56 að loknum þrem.
Fjórði leikhluti var í einu orði sagt, ótrúlegur. Stjörnumenn voru fimm stigum yfir þegar um ein og hálf mínúta voru til leiksloka, og Stólarnir ná að skora tveggja stiga skot. Stjörnumenn fóru þá í sókn en Keith Cothran gerði sig sekan um skelfileg mistök og gestirnir brunuðu í hraðaupphlaup þar sem Maurice Miller fór ískaldur upp í þrist og smellti honum beint í grímuna á Justin Shouse, sem fann sig engan veginn í leiknum. Stjörnumenn tóku þá leikhlé með 13 sekúndur á klukkunni. Leikhlé Stjörnunnar hlýtur samt að hafa farið í eitthvað allt annað en að útfæra lokasóknina, því hún var hörmuleg. Shouse dripplaði boltanum við þriggja stiga línuna í um tíu sekúndur, gaf svo á Cothran sem þurfti að fara upp í glórulausan þrist, sem var þó ekki svo langt frá því að detta. Var því jafnt, 76-76, og gripið til framlengingar. Ótrúleg barátta hjá gestunum úr Skagafirði, sem höfðu á þessum tímapunkti aðeins verið yfir í stöðunni 0-2.
Það var síðan ekki að spyrja að því í framlengingunni, hvorum megin sigurinn myndi enda. Tindastóll virtist miklu hungraðra liðið og drifnir áfram af Maurice Miller sigruðu þeir Stjörnuna með þremur stigum, lokatölur 85-88 gestunum í vil, í ótrúlegum leik.
Stjörnumenn naga sig eflaust í handabökin eftir leikinn enda voru þeir komnir með um átta fingur á tvö stig. Glórulausar sóknir í lokin urðu þeim þó að falli, eins og í síðustu leikjum, þó sóknarleikur þeirra hafi ekki verið nærri því eins slæmur og í undanförnum leikjum. Keith Cothran var mun betri en oft áður, og Marvin átti fínan leik en þeir, eins og allt Stjörnuliðið, voru einfaldlega ekki tilbúnir þegar áhlaup gestanna kom undir lokin. Skagfirðingar fara þó væntanlega mjög sáttir heim með tvö stig enda eiga þeir allt hrós skilið fyrir stórkostlega baráttu. Ljóst er að þetta Tindastólslið gæti jafnvel gert usla í efri hluta deildarinnar, ef þeir halda þessu skriði áfram en liðið hefur nú unnið 6 af síðustu sjö leikjum sínum.
Stigahæstur Stjörnunnar í kvöld var Marvin Valdimarsson með 22 stig, og Cothran bætti við 17. Hjá Tindastóli var Maurice Miller frábær með 30 stig, og Curtis Allen var sannarlega betri en enginn með 17 stig og 19 fráköst.
Glæsilegur sigur hjá Skagfirðingum, sem geta vel við unað en Stjörnumenn þurfa allir sem einn að taka til í hausnum á sér, því spilamennska liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska að undanförnu og ljóst að Garðbæingar geta kysst titilbaráttu bless ef þessi brandari heldur áfram.
Umfjöllun/ Elías Karl Guðmundsson