spot_img
HomeFréttirStólarnir mættir til Eistlands

Stólarnir mættir til Eistlands

Íslandsmeistarar Tindastóls er mættir til Parnu í Eistlandi þar sem liðið mun á næstu dögum taka þátt í forkeppni FIBA Europe Cup.

Um er að ræða þriggja liða riðil þar sem liðið mun ásamt heimamönnum í Parnu mæta Trepca frá Kósovó, en aðeins eitt lið mun komast áfram úr riðlinum í keppnina.

Tindastóll hefur leik á morgun þriðjudag, 3. október kl. 16:00 á íslenskum tíma á móti heimamönnum í Pärnu.

Miðvikudaginn 4. október leikur Tindastóll svo seinni leik sinn í riðlinum og er sá leikur á móti BC Trepca frá Kósóvó og hefst hann einnig kl. 16:00 á íslenskum tíma.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -