HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindavík áfram taplaust á toppnum og Valur sótti öruggan sigur í Síkið

Grindavík áfram taplaust á toppnum og Valur sótti öruggan sigur í Síkið

Fimmta umferð Bónus deildar kvenna kláraðist í kvöld með tveimur leikjum þar sem gestaliðin fóru með örugga sigra af hólmi.  

Topplið Grindavíkur hélt sigurgöngu sinni áfram og vann sannfærandi útisigur á botnliði Fjölnis í Grafarvogi, 70–99. Grindvíkingar sitja þar með einir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm leiki, á meðan Fjölnir leitar enn að sínum fyrsta sigri.  

Á Sauðárkróki unnu Valskonur afar öruggan 27 stiga útisigur á Tindastóli, 45–72. Með sigrinum lyfti Valur sér upp að hlið Hauka og KR með 6 stig í 4.–6. sæti deildarinnar, en Tindastóll situr áfram í 7. sætinu með 4 stig.  

Úrslit kvöldsins:

 Fjölnir 70 – 99 Grindavík  

 Tindastóll 45 – 72 Valur

Fréttir
- Auglýsing -