HomeBónus deildinBónus deild kvennaSterkur síðari hálfleikur skilaði KR sigri

Sterkur síðari hálfleikur skilaði KR sigri

KR hafði betur gegn Haukum, 97–91, í æfingaleik meistaraflokks kvenna í gærkvöldi.  

Haukar byrjuðu leikinn betur, leiddu 30–20 eftir fyrsta leikhlutann og héldu þriggja stiga forskoti í hálfleik, 52–49. Vesturbæingar sneru hins vegar taflinu við í síðari hálfleiknum með öflugum spretti í þriðja leikhluta (27–18) og héldu fengnum hlut til loka.  

Dazia fór fyrir liði KR með 23 stig, Rebekka Rut skoraði 15 stig og tók 7 fráköst, Sara Rún 16, Emma setti 14 stig og Aaliyah bætti við 11 stigum. Hjá Haukum var fyrirliðinn Sigrún stigahæst með 19 stig og 7 fráköst, Jada skilaði 17 stigum og 6 stoðsendingum, Tinna bætti við 14 stigum og Sólrún skoraði 11 stig.

Fréttir
- Auglýsing -