spot_img
HomeFréttirSpilaði með þrjú brjósklos í úrslitaseríunni

Spilaði með þrjú brjósklos í úrslitaseríunni

Elena Delle Donne, leikmaður Washington Mystics, glímdi við bakmeiðsli í úrslitaseríunni á móti Connecticut Sun en það var ekki fyrr en eftir oddaleikinn að liðið gaf út hversu slæm þau voru.

Hún var með brjósklos á þremur stöðum.

Þrátt fyrir meiðslin þá skoraði hún 21 stig og tók 9 fráköst í oddaleiknum. Donne, sem var valin besti leikmaður deildarinnar í ár, spilaði alla 5 leikina og var með 13,4 stig að meðaltali í þeim.

Þetta var í þriðja sinn sem Donne komst í úrslitaseríu deildarinnar en í fyrsta sinn sem hún stendur uppi sem sigurvegari.

Fréttir
- Auglýsing -