Veislan er hafin hjá körfuboltaunnendum og ef eitthvað er að marka leik Grindavíkur og Stjörnunnar í kvöld þá er spennandi og skemmtileg úrslitakeppni framundan. Grindvíkingar byrjuðu 1.leikhluta mjög vel og eftir um 3ja mínútu leik var staðan orðin 8-2 fyrir Grindavík þar sem Grindvíkingar höfðu sett tvo þrista og varið tvö skot Stjörnumanna og ætluðu greinilega að sýna Stjörnunni hvaða lið væri á heimavelli. Staðan í lok 1.leikhluta var 28-20 fyrir Grindavík og mikil stemning í báðum liðum. Mladen Soskic var komin með 15 stig hjá Grindavík en Renato Lindmets 10 stig hjá Stjörnunni.
Það má segja að annar leikhluti hafi verið leikhluti Ryan Pettinella en hann skoraði fyrstu 10 stigin fyrir Grindavík og alls 13 stigí leikhlutanum af þeim 17 sem Grindvíkingar skoruðu. Stjörnumenn áttu erfitt með að finna körfuna og virkaði sóknarleikurinn nokkuð tilviljunarkenndur. Um miðjan leikhlutann skorar Jovan flotta þriggja stiga körfu og minnkar muninn í 6 stig og skorar svo úr víti stuttu seinna og munurinn orðinn 5 stig en Páll Axel skorar seinustu stig leikhlutans og Grindavík var yfir í hálfleik 45-38.
Spennustigið var hátt hjá leikmönnum í seinni hálfleik og Stjörnumenn börðust út um allan völl til að ná að minnka muninn og freista þess að komast yfir og þegar 3 mínútur voru búnar af leikhlutanum braut Mladen á Justin Shouse í 3ja stiga skoti. Justin setti niður öll skotin og kom Stjörnunni yfir 49-51. Þá steig Páll Axel upp í liði Grindavíkur og setti niður stóran þrist strax í næstu sókn og annan í sókninni þar á eftir og breytti stöðunni í 55-51. Það má segja að þetta hafi verið leikhluti Páls Axels sem setti alls þrjá þrista í leikhlutanum og voru þeir allir af dýrari gerðinni. Mikill hiti var í leikmönnum og þurftu dómarar leiksins oft og tíðum að róa niður leikmenn og stíga á milli leikmanna. Staðan í lok leikhlutans var 67-64 og spennandi lokaleikhluti framundan.
Liðin skiptust á að skora í upphafi 4.leikhluta og eftir aðeins tvær mínútur hafði Fannar Helgason jafnað leikinn 70-70 og Jovan Zdravevski komið síðan Stjörnunni yfir 70-73 með flottum þrist þegar um 7 mínútur voru eftir. Liðin skiptast á körfum og um miðjan leikhlutann skorar Ólafur Ólafsson stóra þriggja stigakörfu og kemur Grindavík í 77-75. Í næstu sókn klikkar Fannar Helgason á tveimur vítum. Liðin skipast síðan á að klikka á skotum og þar á meðal klikkar Mladen á skoti í sókn fyrir Grindavík en þá flýgur Ólafur Ólafsson manna hæst og nær að blaka boltanum ofan í og kemur Grindavík í 79-75. Stjörnumenn neita að gefast upp og Justin setur niður þriggja stigaskot og minnkar muninn í 79-78 og þrjár og hálf mínúta eftir af leiknum.
Liðin skiptast á að skora og þegar rúm mínúta er eftir af leiknum skorar Ryan tvö stig og þá er þriggja stiga munur á liðunum 86-83. Stjarnan fer í sókn en Ryan stelur boltanum þegar um 45 sekúndur eru eftir af leiknum. Nick Bradford ætlaði greinilega að klára leikinn fyrir Grindvíkinga og ætlar að taka seinasta skotið fyrir Grindavík en klikkar og Stjörnumenn fara í sókn þegar um 28 sekúndur eru eftir að leiknum og freista þess að jafna leikinn enda munar 3 stigum á liðunum. Þegar 10 sekúndur eru eftir fer Renato upp í tveggja stiga skot en flestir bjuggust við því að Stjarnan myndi reyna við 3ja stiga skot. Hann klikkar og Nick Bradford nær varnarfrákastinu en Justin brýtur á honum um leið. Nick setur bæði skotin ofan í og staðan því orðin 88-83 fyrir Grindavík og aðeins 10 sekúndur eftir. Stjarnan tekur leikhlé til að stilla upp í sókn en það gekk ekki betur en svo að Ólafur stelur boltanum og kórónar góðan leik og sigur Grindvíkingina með flottri troðslu
Þetta var frábær leikur í alla staði og virkilega gaman að sjá hvað stigaskorið dreifðist vel hjá báðum liðum og mikið af flottum tilþrifum og stórum þriggja stiga körfum. Hjá Grindavík má segja að leikmenn hafi skipt með sér leikhlutum en Mladen fór á kostum í 1.leikhluta, Ryan í 2.leikhluta, Páll Axel í þeim 3ja og Ólafur Ólafsson í þeim 4ja.
Hjá Stjörnunni dreifðist stigaskorið jafnt og þétt yfir leikinn en Justin, Jovan, Renato, Marvin og Fannar áttu allir fínan leik og skoruðu allir 10 stig eða meira.
Heildarskor: (Grindavík 1-0 Stjarnan)
Grindavík: Mladen Soskic 20/4 fráköst, Ryan Pettinella 19/8 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 18/6 fráköst, Ólafur Ólafsson 17/5 fráköst/7 stoðsendingar, Nick Bradford 12/10 fráköst/7 stoðsendingar, Ómar Örn Sævarsson 4, Björn Steinar Brynjólfsson 0, Egill Birgisson 0, Helgi Björn Einarsson 0, Þorsteinn Finnbogason 0, Ármann Vilbergsson 0.
Stjarnan: Justin Shouse 21/9 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 17, Renato Lindmets 16/4 fráköst, Marvin Valdimarsson 14, Fannar Freyr Helgason 10/15 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 3, Guðjón Lárusson 1, Kjartan Atli Kjartansson 1, Tómas Þórður Hilmarsson 0, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0, Dagur Kár Jónsson 0, Ólafur Aron Ingvason 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kr. Hreiðarsson
Umfjöllun: Bryndís Gunnlaugsdóttir





