Íslenska tuttugu ára landslið karla mætir liði Búlgaríu í átta liða úrslitum á Evrópumótinu í Bratislava í Slóvakíu.
Strákarnir okkar tryggðu sér sætið í úrslitakeppni B-deildarinnar þrátt fyrir naumt tap gegn Bosníu í lokaleik riðilsins í gær, en liðið hafði áður unnið fjóra fyrstu leiki sína á mótinu með glæsibrag. Það er mikil spenna í loftinu enda dugir ekkert annað en sigur í þessum leik til að halda áfram baráttunni um efstu sætin á mótinu.
Þessi mikilvægi leikur fer fram í dag föstudag kl. 13:30 að íslenskum tíma. Það verður magnað að fylgjast með strákunum þegar þeir mæta dýrvitlausir til leiks í Bratislava og berjast fyrir sæti í undanúrslitunum, svo það er um að gera að stilla inn á útsendinguna hér fyrir neðan.



