HomeFréttirSpennan magnast: Bikarúrslit í Höllinni á Laugardag

Spennan magnast: Bikarúrslit í Höllinni á Laugardag

 
Körfuknattleikssamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í dag til að kynna Poweradebikarúrslitin sem fara fram í Laugardalshöll á laugardag. Fjörið hefst kl. 13:30 með viðureign KR og Keflavíkur í kvennaflokki og kl. 16:00 mætast KR og Grindavík í karlaflokki. Miðasala fer fram á www.midi.is
Bikarúrslitin fara nú fram í 42. sinn í karlaflokki en í 37. sinn í kvennaflokki. Frá árinu 1993 hafa bikarúrslitin farið fram á þessum árstíma.
 
Heiðursgestir liðanna á leikjunum um helgina:
 
KR:
Kolbeinn Pálsson, f.v. leikmaður og þjálfari KR, íþróttamaður ársins 1966 og fv. formaður KKÍ.
 
Keflavík:
Berglind Hauksdóttir, Landsbankinn í Keflavík
 
Grindavík:
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
 
KKÍ:
Ólafur Rafnsson, forseti FIBA Europe og ÍSÍ
 
Það verða söngvarar frá ÓP-hópnum sem munu syngja þjóðsöng Íslands fyrir báða leikina, Bylgja Dís Gunnarsdóttir í kvennaleiknum og Hörn Hrafnsdóttir í karlaleiknum.
Fréttir
- Auglýsing -