Undir 20 ára landslið karla í körfubolta mætir Bosníu í dag í lokaleik sínum í riðlakeppni B-deildar Evrópumótsins. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og með sigri getur íslenska liðið tryggt sér efsta sæti riðilsins.
Íslensku strákarnir hafa verið stórkostlegir á mótinu til þessa og eru enn taplausir. Staða liðsins er gríðarlega sterk og það þarf hreinlega mjög stórt tap til þess að þeir komist ekki áfram í átta liða úrslitin, þar sem Ísland má tapa leiknum með allt að níu stiga mun og komast samt áfram.
Leikurinn er í beinni útsendingu og hægt er að fylgjast með beinu vefstreymi frá keppninni hér fyrir neðan.



