Næstsíðasti leikdagurinn er runninn upp á Norðurlandamóti undir 16 ára liða í Kisakallio í Finnlandi, en í dag mæta íslensku liðin til leiks full af orku gegn Danmörku. Íslensku hóparnir fengu kærkominn frídag í gær sem var nýttur til hins ítrasta til að hlaða batteríin, slaka á og hanga saman, sem þjappaði hópnum enn betur saman fyrir lokaátökin.
Drengirnir ríða á vaðið klukkan 11:00 að íslenskum tíma og klukkan 14:00 er röðin komin að stúlkunum að spreyta sig gegn dönskum jafnöldrum sínum. Leikirnir í dag eru gríðarlega mikilvægir fyrir framhaldið, en á morgun lýkur mótinu formlega þegar íslensku liðin mæta Finnlandi í lokaleikjum sínum.
Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinu vefstreymi frá mótinu
Hérna eru hópar undir 16 ára liða og upplýsingar um aðra leiki
Lifandi tölfræði og stöðutafla – Stúlkur U16 / Drengir U16




