spot_img
HomeFréttirSpánn tilkynnir gríðarlega sterkt lið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi annað kvöld

Spánn tilkynnir gríðarlega sterkt lið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi annað kvöld

Ísland mætir Spáni annað kvöld ytra í fyrsta leik sínum í lokariðil undankeppni HM 2023. Leikurinn hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV2. Seinni leikur ágústs leikja gluggans er svo á dagskrá komandi laugardag 27. ágúst, en í honum tekur liðið á móti Úkraínu í Ólafssal.

Spánn tilkynnti það fyrr í dag hvaða 12 leikmenn það verða sem mæta Íslandi annað kvöld. Hópinn er í heild hægt að sjá hér fyrir neðan. Í honum eru meðal annarra NBA bræðurnir Willy og Juancho Hernangomez, en þar eru einnig þónokkrir aðrir ACB og EuroLeague leikmenn. Þá voru fjórir leikmanna morgundagsins í liði Spánar sem vann heimsmeistaratitilinn árið 2019.

Segja má að leikurinn annað kvöld gæti orðið ákveðin brekka fyrir íslenska liðið, en fyrir leikinn er lið Spánar metið það næstbesta í heiminum á eftir því Bandaríska, á meðan að Ísland, sem hefur verið á uppleið síðustu misseri, situr í 44. sætinu.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -