HomeBónus deildinBónus deild karlaSóttu sigur gegn Stjörnunni 

Sóttu sigur gegn Stjörnunni 

Höttur bar sigurorð af Stjörnunni, 98–86, í æfingaleik meistaraflokks karla í ÞG Verk höllinni.  

Fyrri hálfleikurinn var afar jafn þar sem Höttur leiddi með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, 25–21, en Stjarnan saxaði á forskotið í öðrum leikhluta og staðan í hálfleik var 42–40 fyrir austanmönnum. Höttur gerði svo nánast út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta þar sem liðið skoraði 33 stig gegn 21 stigi Stjörnunnar og náði forystu sem Garðbæingar náðu ekki að brúa á lokasprettinum.  

Josh Martin fór fyrir liði Hattar og var stigahæstur með 23 stig, Nemanja Knezevic skoraði 15 stig, Marquis Jackson bætti við 14 stigum og Sveinn Búi skilaði 10 stigum. Þá skoruðu Obie Trotter og Aleksandar Pantelic 9 stig hvor og Ásmundur Múli og Adam Ásgeirsson lögðu til 8 stig hvor.  

Í liði Stjörnunnar var Hilmar atkvæðamestur með 22 stig og Austin bætti við 16 stigum. Ægir og Amandas skoruðu 9 stig hvor, á meðan Bjarni, Atli og Viktor lögðu til 6 stig hver fyrir heimamenn.

Fréttir
- Auglýsing -