Tindastóll sópaði Grindavík út úr 8-liða úrslitum Dominos deildar karla í Síkinu í kvöld en það var langt frá því að vera létt verk.
Leikurinn í Síkinu í kvöld var engin göngutúr í skóginum fyrir heimamenn í Tindastól. Stólar höfðu komist í 2-0 í einvígi liðanna með frábærum sigri í Grindavík í síðasta leik en það var eins og þeir mættu ekki alveg tilbúnir til leiks í kvöld og gestirnir úr Grindavík létu þá finna vel fyrir sér. Gestirnir komust í 12-18 en Tindastóll kom tilbaka með þristum frá Axel Kára og Viðari. Jóhann Árni sá til þess að gestirnir voru yfir eftir fyrsta leikhluta með þrist í lokin 22-23 fyrir gestina. Annar leikhluti spilaðist svipað, gestirnir náðu að rykkja frá en Tindastóll svaraði með ágætis baráttu í lokin og náðu að jafna í hálfleik eftir að stela boltanum í lokasókn Grindvíkinga 41-41.
Seinni hálfleikurinn byrjaði á sömu lund, gestirnir komust í smá forystu en Arnar Björnsson og Axel Kára sáu til þess að hún varð aldrei mjög mikil. Stólarnir voru svo sterkari á lokasprettinum og gestirnir hentu frá sér boltanum þegar 22 sekúndur lifðu leiks og heimamenn kláruðu leikinn á vítalínunni.
Þáttaskil
Leikurinn var jafn og spennandi fram á lokasekúndurnar eins og sá fyrsti en misheppnuð sending Bullock á Sigga Þorsteins í lokin reyndist dýr.
Tölfræðin lýgur ekki
Öll tölfræði liðanna var gríðarlega jöfn en heimamenn hittu aðeins betur og það telur.
Hetjan
Arnar Björnsson var frábær í kvöld og átti oftast svar þegar aðrir hikstuðu í sókninni. Axel skilaði líka mikilvægum stigum í hús. Siggi Þorsteins var besti maðurinn á vellinum með 20 stig og 7 fráköst en það dugði ekki til
Kjarninn
Tindastóll náði að sópa Grindavík út úr einvíginu 3-0 en erfitt var það, sérstaklega í Síkinu
Myndasafn (væntanlegt)
Umfjöllun, myndir, viðtöl / Hjalti Árna
Mynd: Bullock fær góðar móttökur hjá Tindastólsvörninni
Viðtal:



