HomeBónus deildinBónus deild karlaSömdu við leikmann sem passar fullkomlega inn í leikstíl bikarmeistaranna

Sömdu við leikmann sem passar fullkomlega inn í leikstíl bikarmeistaranna

KR hefur gengið frá samningi við sænska landsliðsmanninn Adam Ramstedt um að leika með meistaraflokki karla í Bónusdeildinni á komandi leiktíð. Ramstedt er 210 sm miðherji sem lék síðast með BG Göttingen í Þýskalandi, þar sem hann skilaði 6,9 stigum og 4,3 fráköstum að meðaltali í leik.

Hann býr yfir gríðarlegri reynslu, en hann lék meðal annars með Val á tímabilinu 2024–2025 ásamt því að hafa leikið í Ungverjalandi, Póllandi, Frakklandi og Svíþjóð. Á ferlinum hefur hann unnið sænska meistaratitilinn sex sinnum, tvisvar verið valinn varnarmaður ársins og einu sinni körfuknattleiksmaður ársins í Svíþjóð (2024), auk þess að eiga að baki 50 landsleiki.

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, segist mjög ánægður með að fá Ramstedt í hópinn og bendir á að stærð hans, hreyfanleiki og öflug varnarleikur passi fullkomlega inn í leikstíl liðsins á leið þeirra á toppinn.

Fréttir
- Auglýsing -