Dominykas Milka ræðir við leikmann Njarðvíkur og fyrrum leikmann íslenska landsliðsins Loga Gunnarsson um ferilinn með Njarðvík, liðum víðsvegar í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður.
Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.
Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Með Dominykas er sem áður ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.
Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.