Körfuboltaáhugafólk landsins fær heldur betur eitthð fyrir sinn snúð því hlaðvarpsþátturinn Aukasendingin er mættur aftur á fullu gasi eftir kærkomið sumarfrí. Strákarnir mæta galvaskir til leiks og rífa veturinn í gang með því að kafa djúpt í allt það helsta sem hefur átt sér stað á leikmannamarkaðnum undanfarnar vikur. Miklar vendingar hafa orðið hjá mörgum liðum og ljóst að landslagið í íslenska körfuboltanum er talsvert breytt frá því í vor.
Stóri hápunktur þáttarins er hins vegar hin árlega og snemmbúna spá strákanna fyrir komandi tímabili í Bónusdeildinni. Sérfræðingar þáttarins fóru yfir hvert einasta lið, ræddu styrkleika þeirra og veikleika og röðuðu þeim niður í deildina út frá núverandi stöðu. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni til að heyra ítarlegar rökræður og skoðanir sem eiga ábyggilega eftir að hleypa lífi í spjallið á kaffistofum landsins.

Hér fyrir neðan má sjá spána í heild sinni eins og hún lítur út í fyrstu útgáfu vetrarins:
- Álftanes Komnir beint á efstu hillu með því að fá Baldur í brúna, ásamt því að tefla fram svakalegu tríói í Frank Booker, Luka Gasic og Dedrick Basile.
- Tindastóll Dee Bost mættur á Krókinn og maður veit hreinlega að það á eftir að koma meira inn í hópinn, en eins og staðan er akkúrat nú er þetta nóg í annað sætið.
- Grindavík Þeir mæta til leiks með Kane ásamt því að hafa vel fyllt veski til að fylgja því eftir.
- Stjarnan Garðbæingar semja við Hilmar ásamt því að Ægir og Orri mæta seint inn í tímabilið til að styrkja hópinn.
- KR Vesturbæingar halda Linards Jaunzemis og byggja ofan á það með mjög sterkum íslenskum kjarna.
- ÍR Breiðhyltingar treysta á töframanninn Borche Ilievski til að galdra fram úrslit í vetur.
- Valur Hlíðarendapiltar keyra á sömu uppskrift og í fyrra en í talsvert léttari útgáfu, enda virðist hjartað vera farið úr liðinu.
- Njarðvík Grænir mæta til leiks með Super-Maríó og Veigar í fararbroddi.
- Keflavík Slefa kannski inn í úrslitakeppnina í ár, enda peningarnir af skornum skammti í Bítlabænum.
- Sindri Nýliðarnir munu treysta á heimastemmninguna og ástríðuna á Höfn til þess að hanga inni í deildinni.
- Höttur Héraðsbúar virðast dæmdir til þess að falla.
- Ármann Botnsætið fellur í skaut Ármenninga þar sem stemmningin virðist hreinlega búin.



