spot_img
HomeSubway deildinSubway deild kvennaSnæfell semur að nýju við Emese Vida

Snæfell semur að nýju við Emese Vida

Snæfell hefur gengið að samningum að nýju við hina ungversku Emese Vida, og mun Vida leika með Hólmurum í Domino’s deild kvenna á komandi tímabili. Frá þessu var greint í tilkynningu frá félaginu í gær.

Vida lék með Hólmurum á síðasta tímabili og skilaði 11,3 stigum og 12,7 fráköstum að meðaltali í þeim 23 leikjum sem hún lék með liðinu.

Snæfell endaði í 6. sæti Domino’s deildarinnar á síðasta tímabili, og var hvorki nálægt falli né úrslitakeppni deildarinnar, sem var blásin af í upphafi COVID 19 faraldursins í mars.

Fréttir
- Auglýsing -