spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSnæfell leggur niður meistaraflokk karla

Snæfell leggur niður meistaraflokk karla

Þau stórtíðindi voru að berast úr Stykkishólmi að Snæfell, Íslandsmeistarar árið 2010, hafa ákveðið að leggja niður karlalið félagsins, að minnsta kosti tímabunið. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu félagsins nú í kvöld.

Í tilkynningunni kemur fram að vegna erfiðleika við að manna karlalið félagsins, sem og rekstrarerfiðleika sjái stjórn körfuknattleiksdeildar sér þann leik einan á borði að leggja niður meistaraflokk karla. Snæfell hefur spilað í fyrstu deild frá árinu 2017, en enduðu neðstir í deildinni á síðustu leiktíð, með 4 stig. Félagið má hins vegar muna sinn fífil fegurri, því meistaraflokkur karla varð Íslandsmeistari árið 2010 og bikarmeistari í tvígang, 2008 og 2010.

Ekki er ljóst hvað verður um sæti Snæfells í 1. deild karla, en við flytjum fregnir af því þegar um leið og þær berast.

Fréttir
- Auglýsing -