Snæfell hefur lokið við mikilvægan áfanga í undirbúningi sínum fyrir komandi leiktíð en leikmenn og stjórn félagsins komu saman og gengu frá samningum fyrir veturinn.
Samhliða því kynnti félagið leikmannahóp meistaraflokks karla sem samanstendur af reynsluboltum, nýjum erlendum leikmönnum og ungum heimamönnum.
Juan Luis Navarro heldur áfram sem fyrirliði og hefur nú sitt þriðja keppnistímabil með félaginu. Þá gengur reyndi leikstjórnandinn Srdjan Stojanovic til liðs við Snæfell, auk þess sem Jason Helgi Ragnarsson snýr aftur heim í Hólminn.
Nýir erlendir leikmenn hópsins eru þeir Cooper Jackson og Keylane Lasisi, sem báðir hefja sinn atvinnumannaferil með félaginu á komandi leiktíð. Ungir heimamenn skipa einnig stóran sess í hópnum; Hjörtur Jóhann Sigurðsson og Gunnar Guðmundsson framlengdu báðir samninga sína, Þorvarður Daníel Einarsson skrifaði undir sinn fyrsta samning og þá skrifuðu þeir Erik Nói Gunnarsson og Símon Tómasson einnig undir hjá Snæfelli.




