HomeFréttirSmith rekinn frá Njarðvík

Smith rekinn frá Njarðvík

 
Njarðvíkingar hafa rekið Bandaríkjamanninn Christopher Smith og leita nú að leikstjórnanda fyrir komandi lokaátök í Iceland Express deildinni í körfubolta. Víkurfréttir greindu frá þessu í gærkvöldi á www.vf.is 
Samkvæmt heimildum VF mun hegðun leikmannsins utan vallar hafa haft með það að segja að hann fékk reisupassann. Njarðvíkingar ætla að halda þeim tveimur erlendu leikmönnum, þeim Jonathan Moore og Nenad Tomasevic sem komu til liðsins nýlega en freista þess að styrkja liðið með nýjum leikstjórnanda. Næsti leikur liðsins er gegn nágrannaliðinu Keflavík á föstudag eftir viku.
 
Í 15 deildarleikjum með Njarðvík gerði Smith 20,9 stig og tók 8,1 frákast að meðaltali í leik og þá leiddi hann deildina í flestum vörðum skotum að meðaltali í leik eða með 3,2 varin skot.
 
Fréttir
- Auglýsing -