Heiður Karlsdóttir hefur ákveðið að söðla um í bandaríska háskólaboltanum og mun leika með Colorado State háskólanum á næsta tímabili. Hún kemur til liðsins frá University of Wyoming þar sem hún hefur leikið með Wyoming Cowgirls.
Þessi flutningur markar nýjan kafla á ferli Heiðar en hún mun áfram leika í Mountain West deildinni. Hún er 193 cm hár miðherji sem mun án efa styrkja lið Colorado State Rams í baráttunni á komandi misserum.





