Ármann sýndi flotta takta og mikla seiglu gegn sterku liði Njarðvíkur í Laugardalshöll í kvöld en mátti að lokum þola sex stiga tap, 81–87, í 5. umferð Bónus deildar kvenna. Ármannskonur voru nálægt því að knýja fram sín fyrstu stig á leiktíðinni en gestirnir reyndust sterkari á lokasprettinum.
Viðtal við Jónínu Þórdísi Karlsdóttur, leikmann Ármanns, má sjá í spilaranum hér að neðan.





