Lokaumferð Dominos deildar kvenna fór fram í dag með fjórum leikjum. Nokkur spenna var fyrir umferðina og kom í ljós hvaða lið verða í úrslitakeppninni.
Í Hafnarfirði var framlengt og unnu Haukar sigur á Skallagrím. Það skipti engu máli fyrir Borgnesinga þar sem Stjarnan tapaði fyrir Val sem þýðir að Skallagrímur stal fjórða sætinu af Stjörnunni með mögnuðum lokaspretti í deildinni þar sem liðið vann sex af síðustu sjö leikjum sínum fyrir daginn í dag.
Keflavík vann nágranna sína í Njarðvík og náði þar með að tryggja annað sæti deildarinnar og heimaleikjarétt. Njarðvík aftur á móti kvaddi efstu deild í bili með tapi í dag. Þá var hreinn úrslitaleikur um 6. sæti deildarinnar í Stykkishólmi þar sem Snæfell vann Breiðablik í spennandi leik.
Í 1. deild kvenna tryggði KR sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri á Grindavík en einvígið fór 3-0 fyrir KR. Það er þá ljóst að KR og Fjölnir leika til úrslita um sæti í Dominos deild kvenna.
Úrslit dagsins:
Dominos deild kvenna:
Haukar 87-82 Skallagrímur
Njarðvík 69-80 Keflavík
Snæfell 71-68 Breiðablik
Stjarnan 66-85 Valur
1. deild kvenna:
KR 80-48 Grindavík
Staðan í einvíginu er 3-0
Lokastaðan í Dominos deild kvenna:
1. Haukar
2. Keflavík
3. Valur
4. Skallagrímur
5. Stjarnan
6. Snæfell
7. Breiðablik
8. Njarðvík




