spot_img
HomeFréttirSjö í röð hjá Good Angels

Sjö í röð hjá Good Angels

Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í Good Angels Kosice tróna á toppi deildarinnar í Slóvakíu en liðið hefur unnið sjö fyrstu leiki sína í deildarkeppninni. Nýjasta fórnarlamb þeirra var Levice þar sem Good Angels unnu yfirburða sigur, 53-116, á útivelli síðastliðinn sunnudag.
 
Good Angels rúlluðu upp deildinni á síðustu leiktíð og fátt ef nokkuð virðist koma í veg fyrir að svo verði einnig þessa leiktíðina. Liðsmenn góðu engalanna beina þó sjónum sínum brátt að meistaradeild Evrópu en keppni þar hefst þann 24. október næstkomandi og byrja Good Angels á útivelli þegar liðið mætir Nadezhda frá Rússlandi.
  
Fréttir
- Auglýsing -