KV hafði betur gegn Skallagrími, 84–82, í æsispennandi viðureign í 1. deild karla á Meistaravöllum í kvöld.
Gestirnir úr Borgarnesi byrjuðu leikinn mun betur, unnu fyrsta leikhlutann 26–14 og voru með undirtökin framan af, en Vesturbæingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið með frábærum síðari hálfleik þar sem þeir skoruðu 51 stig gegn 30 stigum gestanna.
Úrslitin réðust á ótrúlegum lokasekúndum leiksins þegar Lars Erik Bragason steig upp og tryggði KV sigurinn með glæsilegri sigurkörfu undir lokin, en myndband af sigurkörfunni má sjá hér fyrir neðan.




