Sindri og Fjölnir tryggðu sér sæti í næstu umferð VÍS bikarsins í dag með sannfærandi stórsigrum á útivelli.
Í karlaflokki hafði úrvalsdeildarlið Sindra öll völd gegn Þór á Akureyri og vann 107–82. Kaleb Lamar Higgins fór á kostum hjá gestunum með tvennu, 23 stig og tólf stoðsendingar, en Craig Lecesne bætti við 17 stigum. Jalen Green dró vagninn hjá Þórsurum með 26 stig.
Í kvennaflokki unnu Fjölniskonur öruggan 93–57 sigur á b-liði Keflavíkur eftir að hafa skorað 32 stig í fyrsta leikhluta. Arna Rún Eyþórsdóttir skilaði 21 stigi og sjö fráköstum fyrir Fjölni og Elín Heiða Hermannsdóttir bætti við 19 stigum. Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir skoraði 19 stig fyrir Keflavík b.




