Elvar Már Friðriksson átti enn einn flottan leikinn fyrir Neptunas í efstu deild Litáens í kvöld, en hann fylgdi eftir stórleik sínum úr síðustu umferð með því að skora 15 stig og gefa tvær stoðsendingar á aðeins 19 mínútum á vellinum.
Framlag Elvars reyndist dýrmætt í miklum spennuleik þar sem Neptunas innbyrti nauman 84–83 útisigur gegn Jonava.
Með sigrinum situr Neptunas í þriðja sæti deildarinnar með þrjá sigra og þrjú töp.




