HomeFréttirSims látinn fara frá Grindavík

Sims látinn fara frá Grindavík

 
Kevin Sims hélt af landi brott í dag en honum var sagt upp í gærkvöldi hjá körfuknattleiksdeild Grindavíkur. Sims þótti engan veginn standa undir væntingum og því var þetta óumflýjanleg ákvörðun, sérstaklega í ljósi mjög slæms gengis liðsins um þessar mundir. Þetta kemur fram á www.umfg.is
Á heimasíðu Grindavíkur segir ennfremur:
 
Það kemur í ljós í leiknum á föstudag á móti Hamri hvort nýr eða nýjir leikmenn verði komnir til liðs við liðið.
 
Sims lék þrjá deildarleiki með Grindavík í Iceland Express deildinni og gerði í þeim 15,3 stig og gaf 3,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þar með hafa Andre Smith, Jeremy Kelly og Kevin Sims farið í gegnum Röstina þetta tíambilið og von á liðsbót fyrir lokasprettinn.
 
Fréttir
- Auglýsing -