HomeFréttirSigurvíman varði stutt

Sigurvíman varði stutt

 
María Ben Erlingsdóttir og liðsfélagar hennar í bandaríska háskólaliðinu UTPA fengu heldur betur kennslustund í gærkvöldi þegar UTPA heimsótti Missouri-skólann. Lokatölur leiksins voru 83-34 Missouri í vil!
Tölfræði leiksins vantar en af tölfræði Maríu í vetur er það að segja að hún er næststigahæsti leikmaður liðsins með 9,4 stig að meðaltali í leik og er þriðji mínútuhæsti leikmaður UTPA með 273 mínútur það sem af er leiktíðinni. Þá er María að jafnaði með 4,3 fráköst í leik.

 
 
UTPA hefur því tapað 10 leikjum og unnið 1 það sem af er tímabilinu og því hægt að segja að sigurvíman frá því 5. desember hafi varað ansi stutt.
 
Næsti leikur UTPA er á morgun á heimavelli gegn St. Edward´s skólanum. Þá eiga Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU einnig heimaleik á morgun er TCU mætir Texas A&M skólanum.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -