spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaSigurganga Þóru og Ástrósar heldur áfram í dönsku úrvalsdeildinni

Sigurganga Þóru og Ástrósar heldur áfram í dönsku úrvalsdeildinni

Þóra Kristín Jónsdóttir, Ástrós Lena Ægisdóttir og AKS Falcon héldu sigurgöngu sinni áfram í kvöld í dönsku úrvalsdeildinni er liðið lagði BMS Herlev örugglega, 75-62.

Eftir leikinn er Falcon eitt á toppi deildarinnar með fjóra sigra og ekkert tap það sem af er tímabili.

Á tæpum 30 mínútum spiluðum skilaði Þóra Kristín 11 stigum, 4 fráköstum, 5 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Ástrós Lena hafði öllu hægar um sig, spilaði tæpar 9 mínútur og skilaði frákasti og stolnum bolta.

Næsti leikur Falcon í deildinni er þann 3. nóvember gegn Aabyhoj.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -