HomeFréttirSigurganga MBC heldur áfram: Hörður með 22 stig um helgina

Sigurganga MBC heldur áfram: Hörður með 22 stig um helgina

Hörður Axel Vilhjálmsson gerði 22 stig, stal 5 boltum, gaf 4 stoðsendingar og tók eitt frákast þegar Mitteldeutcher BC vann 81-73 heimasigur á Science City Jena í þýsku Pro A deildinni um helgina. Hörður hefur verið í miklum ham upp á síðkastið og MBC nýtur góðs af því á toppi deildarinnar.
Hörður er með 11,2 stig að meðaltali í leik, 3,8 stoðsendingar og 2,1 frákast og leikur að jafnaði 23,55 mínútur með MBC. Tölurnar hafa verið að taka kipp upp á við hjá kappanum sem fyrir nokkru síðan hefur unnið sér inn fast sæti í byrjunarliði MBC.
 
Hörður er í 39. sæti deildarinnar yfir stigahæstu leikmenn og í 12. sæti yfir stoðsendingahæstu leikmenn. Sem stendur er MBC á toppi Pro A deildarinnar með 30 stig en fast á hæla þeirra koma Kirchheim Knights með 28 stig.
 
Staðan í Pro A deildinni
 
 Mitteldeutscher BC 18 15 3 30 1593 1427 166 9-0 6-3 8-2 4  
 
 VfL Kirchheim Knights 19 14 5 28 1574 1445 129 8-1 6-4 7-3 2  
 
 Crailsheim Merlins 19 13 6 26 1571 1488 83 9-2 4-4 6-4 1  
 
 webmoebel Baskets 18 11 7 22 1605 1557 48 7-2 4-5 6-4 3  
 
 BV Chemnitz 99 19 11 8 22 1435 1408 27 8-2 3-6 7-3 2  
 
 Gloria GIANTS Düsseldorf 19 10 9 20 1389 1334 55 6-3 4-6 4-6 – 1  
 
 Nürnberger BC 18 9 9 18 1431 1435 -4 6-5 3-4 6-4 1  
 
 USC Heidelberg 18 9 9 18 1612 1550 62 5-4 4-5 4-6 – 2 Direkter Vergleich
 
 
 Science City Jena 19 9 10 18 1497 1488 9 6-3 3-7 5-5 – 1  
 
10   Cuxhaven BasCats 18 8 10 16 1382 1441 -59 6-2 2-8 3-7 1  
 
11   Erdgas Ehingen/Urspringschule 19 8 11 16 1420 1456 -36 7-3 1-8 5-5 – 3  
 
12   ETB Wohnbau Baskets 18 7 11 14 1380 1396 -16 3-5 4-6 5-5 – 1  
 
13   BG Karlsruhe 19 7 12 14 1548 1634 -86 6-3 1-9 6-4 – 2  
 
14   Saar-Pfalz Braves 19 5 14 10 1514 1625 -111 4-6 1-8 1-9 – 4  
 
 
15   BG TOPSTAR Leitershofen/Stadtbergen 18 3 15 6 1354 1621 -267 1-7 2-8 2-8 1
 
Fréttir
- Auglýsing -