Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Tindastóls, er einn fimm leikmanna sem tilnefndir eru sem besti leikmaður nóvembermánaðar í Evrópukeppninni ENBL, en kosning stendur nú yfir í athugasemdakerfinu á Instagram-síðu deildarinnar.
Júlíus Orri hefur skilað 9 stigum, 6 stoðsendingum og 3 fráköstum að meðaltali í leik með Tindastóli í keppninni í mánuðinum. Auk hans eru tilnefndir þeir Spencer Reaves, Kevon Godwin, Sam Hines Jr. og Jalen Cooper.
Kosningin stendur aðeins yfir í sólarhring og getur hver og einn kosið einu sinni með því að skrifa viðeigandi tákn í athugasemdir við færsluna – klapp-tákn (👏) til að greiða Júlíusi Orra atkvæði á Instagram-síðu ENBL.





