Sigurður Þór Einarsson fór meiddur af velli hjá Horsens IC í dönsku úrvalsdeildinni í gær þar sem Horsens mátti þola fjórða deildartapið sitt í röð. Tapið í gær var gegn Horshom 79ers 78-69 þar sem Sigurður meiddist.
,,Þetta eru nárinn og innra lærið, ég teigði eitthvað á því en vona bara að það verði komið í lag fyrir næsta leik, það var þokkalega fúlt að meiðast svona þar sem ég var í byrjunaliðinu,“ sagði Sigurður í snörpu samtali við Karfan.is.
Sigurður sagði einnig að liðinu gengi ekki nægilega vel að vinna úr mótspyrnunni sem þeir fá í leikjum en vonaðist til þess að hópurinn kæmist fljótt á rétta braut og að hann yrði með strax í næsta leik. Þá taldi Sigurður að Bakken Bears væri með sterkast liðið í deildinni þetta tímabilið.
,,Þeir eru búnir að spila svo lengi saman og lesa vel leikinn,“ sagði Sigurður um Bakken en taldi þó deildina jafna og að allir gætu unnið alla.