spot_img
HomeFréttirSigur í framlengingu

Sigur í framlengingu

{mosimage}

U20 ára liðið vann Íra 99-89 í gær eftir framlengdan leik. Staðan að venjulegum leiktíma loknum var 77-77. Jóhann Árni Ólafsson var gríðarlega öflugur hjá íslenska liðinu og gerði 36 stig en Steingrímur Gauti Ingólfsson átti einnig frábæra innkomu af bekk en hann gerði 16 stig. 

Íslenska liðið byrjaði leikinn með látum og komst í 12-2 en það var eins og eitthvað kæruleysi gripi um sig og Írar gengu á lagið, og voru komnir yfir 20-25 eftir fyrsta leikhluta. Forskot Íra var orðið 8 stig þegar strákarnir áttu fínan lokasprett og þeir minnkuðu muninn í 1 stig fyrir hlé, 43-44. 

Síðari hálfleikurinn var eins og stærsti hluti fyrri hálfleiks. Írar skrefinu á undan og það var fyrst og fremst varnarleikur Íslands sem var ekki nægilega góður. Írar höfðu 9 stiga forskot þegar fjórði leikhluti fór af stað.

Lokaspretturinn gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig. Pavel fékk sína fimmtu villu þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. Jóhann og Steingrímur settu sitt hvorn þristinn með stuttu millibili og Kristján Sigurðsson kom Íslandi einu stigi yfir þegar um mínúta var eftir. Írar svöruðu en Vésteinn kom íslenska liðinu aftur yfir 77-76 og tæplega hálf mínúta eftir. Írar fengu svo hraðupphlaup og Vésteinn braut af sér og fékk dæmda óíþróttamannslega villu öðru sinni í leiknum og þar af leiðandi brottvísun. Írar hittu úr öðru vítinu og tókst svo ekki að skora og okkar menn fengu boltann þegar 2 sekúndur voru eftir og Ísland tók leikhlé. Kristján fékk svo lokaskotið sem geigaði og því framlengt. 

Í framlengingunni má segja að aðeins eitt lið hafi verið á vellinum. Á fimm mínútum gerðu strákarnir 22 stig gegn 12 stigum Íra. Steingrímur og Kristján settu sitthvorn þristinn sem kom Íslandi sex stigum yfir og þeir Kristján og Jóhann settu svo aðra tvo með stuttu millibili og gerðu endanlega út um vonir Íra.

Baráttusigur því í höfn þar sem góðu kaflarnir voru reyndar of fáir, en góður endasprettur og frábær leikur í framlengingu skiluðu sigri og öðru sæti í milliriðlinum. Þessi staða þýðir að Ísland mætir Hollandi í krossspili um 9. til 12. sæti. Sigurvegarinn úr því einvígi spilar um 9. sætið við sigurvegarann úr viðureign Portúgal og Svíðþjóðar, en liðin sem tapa mætast um 11. sætið. 

Tölfræði Íslenska liðsins: Jóhann Árni 36 stig (7/12 2ja, 4/7 3ja, 10/12 víti, 7 fráköst), Steingrímur Gauti 16 stig (2/3 2ja, 3/4 3ja, 3/4 víti), Kristján 15 stig (3 stoð), Pavel 13 stig (12 fráköst), Darri 8 stig (5 fráköst, 3 stoð), Alexander 7 stig (7 fráköst, 3 stoð), Vésteinn 4 stig. Elvar og Birgir léku einnig án þess að skora. 

Í dag eiga strákarnir frí og hvíla sig fyrir lokasprettinn. Á laugardag er leikið við Holland og hefst leikurinn kl 19:45 að íslenskum tíma en strákarnir eiga harma að hefna frá í fyrsta leik mótsins.

 

 

Frétt af www.kki.is

Mynd: Jóhann var heitur í gær og setti 36 stig

Fréttir
- Auglýsing -