spot_img
HomeFréttirSigrún Björg og Chattanooga lutu í lægra haldi gegn Mercer

Sigrún Björg og Chattanooga lutu í lægra haldi gegn Mercer

Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola tap í gærkvöldi gegn Mercer Bears í bandaríska háskólaboltanum, 52-69.

Það sem af er tímabili hafa Chattanooga unnið tvo leiki og tapað fjórtán.

Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún Björg 5 stigum, 4 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.

Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga er komandi þriðjudag 11. janúar gegn Samford Bulldogs.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -