Keppni hélt áfram í Lifetrack-Hofland æfingamótinu með tveimur leikjum þar sem Haukar og Snæfell fögnuðu sigrum.
Haukar höfðu betur gegn Skallagrími, 101–83, í öruggum sigri Hafnarfjarðarliðsins.
Í hinum leik kvöldsins hafði Snæfell betur gegn Selfossi í miklum spennuleik, 82–79. Í liði Snæfells fór Srdjan mikinn og var stigahæstur með 30 stig, Cooper skoraði 21 stig og Juan bætti við 10 stigum. Hjá Selfossi var Aristote Bissokot atkvæðamestur með 23 stig en þeir Fjölnir Morthens og Avery Sullivan skoruðu 22 stig hvor.




