Fyrsta umferð Bónus deildar kvenna rúllaði af stað í kvöld með þremur leikjum.
Grindavík valtaði yfir Ármann í Laugardalshöll með 104–65 sigri þar sem Suðurnesjakonur fóru á kostum í síðari hálfleik. Í Vesturbænum hafði KR betur gegn Stjörnunni, 94–87, í fjörugum og stigaháum spennuleik þar sem úrslitin réðust á lokasprettinum. Á Sauðárkróki gerði Tindastóll út um leikinn gegn Keflavík í seinni hálfleik eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 40–40, og tryggði sér sannfærandi 73–58 sigur.




