spot_img
HomeFréttirSigmundur Már orðinn leikjahæsti dómari sögunnar

Sigmundur Már orðinn leikjahæsti dómari sögunnar

Sá merkilegi atburður átti sér stað síðastliðinn fimmtudag að Sigmundur Már Herbertsson dæmdi 2054 leik sinn fyrir KKÍ en það var leikur Stjörnunnar og Tindastóls í Subwaydeild karla.

Með leiknum varð Sigmundur leikjahæsti dómari sögunnar á Íslandi, en hann tók framúr Rögnvaldi Hreiðarssyni sem dæmdi hafði dæmt 2053 leiki þegar hann lagði flautuna á hilluna síðastliðið vor


Lengi framan af var Jón Otti Ólafsson sá sem hafði dæmt flesta leiki fyrir KKÍ og þegar hann hætti vorið 2004 hafði hann dæmt 1673 leiki, Rögnvaldur fór svo framúr honum 2016 og nú er Sigmundur kominn fram úr Rögnvaldi

Fréttir
- Auglýsing -