spot_img
HomeFréttirSíðustu umferð fyrir jól lýkur í kvöld

Síðustu umferð fyrir jól lýkur í kvöld

15:19
{mosimage}

(Hreggviður og félagar í ÍR taka á móti Snæfellingum í kvöld) 

Tíunda og síðasta umferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Nóg verður um að vera á Suðurnesjum þar sem Njarðvík og Keflavík eiga bæði heimaleiki. 

Topplið Keflavíkur fær Skallagrím í heimsókn en Borgnesingar hafa að undanförnu verið að ranka við sér af værum blundi. Keflavík hefur fullt hús stiga á toppi deildarinnar með 18 stig en Skallagrímur hefur 10 stig í 4. sæti deildarinnar. 

Njarðvíkingar fá Fjölni í heimsókn í Ljónagryfjuna en Njarðvíkingar hafa 10 stig rétt eins og Skallagrímur en Fjölnir hefur 6 stig í 9. sæti deildarinnar.  

Þá mætast Íslandsmeistarar KR og Tindastóll í Vesturbænum og bikarmeistarar ÍR fá Snæfellinga í heimsókn í Seljaskóla. 

Umferðinni lýkur svo annað kvöld með viðureignum Þórs og Grindavíkur á Akureyri og Stjörnunnar og Hamars í Ásgarði í Garðabæ.

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -