Neil Shiran Þórisson, þjálfari KFÍ, sagði eftir leikinn að villuvandræði liðsins hefðu verið dýrkeypt og sömuleiðis munar um það fyrir lið eins og KFÍ að Ari Gylfason sat heima í kvöld vegna veikinda þegar liðið lá 100-86 gegn KR í DHL-Höllinni.
,,Það er náttúrulega mjög erfitt að hafa ekki þennan kjarna leikmanna eins og KR hefur, við lentum í villuvandræðum í þessum leik og það náttúrulega sást alveg bersýnilega þegar við þurftum að slaka á í vörninni, hefði ég haft meiri breidd í hópnum þá hefði þetta kannski farið öðruvísi. Reyndar vantar í hópinn en hann Ari Gylfa sem er veikur heima”.
Lið KFÍ situr sem stendur á botni deildarinnar með 3 sigra á meðan KR er í toppbaráttunni og hefur ekki tapað leik á heimavelli í deildinni í ár. Hvernig mótiverar liðið sig fyrir leik eins og þennan.
,,Það var auðvelt. Menn eru tilbúnir til þess að hefna fyrir ófarirnar fyrir vestan. Sá leikur er ennþá fersku í minni þannig að menn mættu hér ákveðnir í að gera betur en þar. Þannig að ég notaði það sem mótiveringu til þess að sýna okkar rétta andlit gegn þessu hörkuliði KR-inga”.
Mynd/ Tomasz: Shiran Þórisson notaði fyrri deildarleik liðanna til að espa sína menn upp í kvöld, það dugði þó ekki til að þessu sinni.
Gísli Ólafsson





