Njarðvík hafa verið að skríða upp töfluna og narta nú í hæla nágrannasinna í Keflavík. Snæfellsstúlkur hafa verið að vinna vel á heimavelli og líka liðin fyrir neðan sig aðallega og eru í 5.sæti með jafnmörg stig og Haukar sem eru í því fjórða. Eftir sigurinn í kvöld skella Njarðvík sér í toppsætið um sinn.
Byrjunarliðin:
Snæfell: Kieraah Marlow, Hildur Björg, Hildur Sigurðard, Helga Hjördís, Alda Leif.
Njarðvík: Salbjörg Sævarsd, Lele Hardy, Shanae Baker-Brice, Petrúnella Skúlad, Erna Hákonard.
Snæfell komst á gott skrið strax í 8-0 og Njarðvík voru frekar stirðar í sínum aðgerðum kláruðu sóknir sínar illa og voru ekki alveg mættar í Hólminn í upphafi leiks. Sverrir tók leikhlé til að fara yfir málin og Petrúnella svaraði kallinu strax með þrist og svo komust grænar nær í 10-9 og virtust búnar að stilla sig af. Staðan eftir fyrsta hluta var 18-16 fyrir Snæfelli.
Njarðvík komst yfir 20-21 og voru Snæfellsstúlkur í raun að gefa þeim færi á að taka forystuna með slökum sniðskotum og úrvalsfærum. Snæfell jafnaði þó aftur 28-28 en Shanae Baker hjá Njarðvík var komin með 17 stig um miðjan annan hluta af þessum 28 stigum á meðan skorið dreifðist meira hjá Snæfelli. Staðan í hálfleik var 32-36 fyrir Njarðvík.
Hjá Snæfelli voru Kieraah og Hildur Sig komnar með 8 stig hvor og Hildur Björg og Helga Hjördís voru komnar með 7 stig hvor. Hjá gestunum í Njarðvík var Shanae Baker í sérflokki með 19 stig en næst henni var Lele Hardy með 8 stig og 8 fráköst.
Njarðvík kom með látum inn í þriðja hluta og komust strax í forystu 34-40. Helga Hjördís náði að minnka muninn með þrist í 39-40 en Njarðvík tók þá 8-0 sprett sem skildi Snæfell eftir í reyk. Mikil kaflaskil voru í leiknum því Snæfell ruku í eitt stykkis 8-0 sprett einnig og staðan snarlega 47-48. Staðan eftir þriðja hluta 53-53 og Shanae Baker komin með 29 stig fyrir grænar.
Rosastuð var í leiknum í upphafi fjórða hluta og Snæfell leiddi strax 60-56 en misstu Njarðvík svo fram úr sér 61-63. Ellen Alfa setti þá rándýran þrist fyrir Snæfell 64-63 og allt á brautum í Hólminum og liðin að skiptust á skinum og allskonar skúrum. Staðan var 69-69 þegar 29 sekúndur voru eftir. Títtnefnd Shanae Baker tók þá af skarið og setti þrist fyrir 69-72 og sín 39. stig þegar 4.5 sekúndur lifðu og Snæfell fékk leikhlé. Snæfell gaf inn boltann en náðu ekki að koma boltanum í skot og Shanae Baker komst inní sendingu og leikurinn Njarðvíkur 69-72 í hörkuleik í Hólminum.
Stig Snæfells: Kieraah Marlow 21/4 stoðs. Hildur Sigurðard 15/5 frák/7 stoðs. Helga Hjördís Björgvinsd 12/4 frák. Hildur Björg Kjartansd 11/5 frák. Ellen Alfa Högnad 6. Alda Leif Jónsd 2/9frák. Sara Mjöll Magnúsd 2. Björg Guðrún 0. Rósa Kristín 0. Aníta Rún 0.
Stig Njarðvíkur: Shanae Baker 39/7 frák. Lele Hardy 14/18 frák. Petrúnella Skúlad 13/6 frák. Ólöf Helga 3. Erna Hákonard 2. Slabjörg Sævarsd1. Eyrún, Ásdís, Sara, Emelía og Harpa 0.
Umfjöllun/ Símon B. Hjaltalín