Njarðvík hefur samið við sex unga og efnilega leikmenn úr yngri flokka starfi félagsins fyrir komandi leiktíð í Bónus deild karla.
Þeir Kristinn Einar Ingvason, Almar Orri Jónsson, Logi Örn Logason, Ómar Orri Gíslason, Ómar Helgi Kárason og Viktor Garri Guðnason léku í 10. og 11. flokki á síðustu leiktíð og munu áfram láta vel til sín taka með yngri flokkum UMFN ásamt því að feta sín fyrstu skref í meistaraflokki.
„Hér eru á ferðinni framtíðarleikmenn hjá félaginu og það verður gaman að sjá þá taka sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins. Við erum að gera vel í yngriflokka starfi félagsins sem er að skila okkur öflugum leikmönnum bæði drengja- og stúlknamegin en það starf er auðvitað grundvöllurinn fyrir velgengni félagsins í baráttunni á meðal þeirra bestu,” sagði Einar Jónsson formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.


