HomeFréttirSemur við VERA Basketball Academy á Spáni

Semur við VERA Basketball Academy á Spáni

Hinn efnilegi Ari Hrannar Bjarmason hefur gengið til liðs við VERA Basketball Academy á Spáni og tekur þátt í N1 prógrammi akademíunnar á komandi tímabili.

Ari Hrannar, sem kemur frá Selfossi en á rætur að rekja til Dalvíkur, er fæddur árið 2006 og er 195 sentímetra hár bakvörður og framherji. Hann býr yfir dýrmætri alþjóðlegri reynslu þrátt fyrir ungan aldur og hefur leikið fyrir yngri landslið Íslands í U16, U18 og U20 flokkum.

Akademían býður Ara innilega velkominn til Spánar á samfélagsmiðlum sínum og fagnar því að fá ungan og metnaðarfullan leikmann til liðs við sig í frekari þróun og keppni á komandi misserum.

Fréttir
- Auglýsing -