Skarphéðinn Arnar Gunnlaugsson hefur gert samning við Torrejón Basketball Academy á Spáni og mun spila með U-18 A-liði félagsins á næsta tímabili.
Áður lék hann með Distrito Olímpico Edu Sport B í Madríd og var hluti af DST Factory afreksprógramminu, en með því liði varð hann meistari í sinni deild á vegum Körfuboltasambands Madrídar (FBM) á síðasta vetri.
Hjá Torrejón býðst Skarphéðni tækifæri til að mæta eldri og reynslumeiri leikmönnum í sterkum leikjum, meðal annars gegn akademíuliðum félaga á borð við Real Madrid, Movistar Estudiantes og Baloncesto Fuenlabrada. Akademían hefur komið mörgum leikmönnum áfram í spænsku ACB-deildina, bandaríska háskólaboltann og yngri landslið.




