KR hefur samið tímabundið við bakvörðinn Rafail Lanaras, samkvæmt heimildum.
Kemur hann til félagsins til að brúa bilið á meðan leyst er úr málum erlends leikmanns liðsins fyrir átökin sem fram undan eru, en KR leikur einmitt um titilinn Meistarar meistaranna gegn Grindavík í kvöld.
Lanaras er íslenskum körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur en hann lék með Þór Þorlákshöfn á síðasta tímabili og stóð sig þar afar vel. Hann kemur því með dýrmæta reynslu inn í Vesturbæinn á afar mikilvægum tímapunkti.




